Friday, December 15, 2006

Jólalag from hell...

Mér var allri lokið í morgun þegar ég í sakleysi mínu kveikti á útvarpinu....og klukkan var rétt um 9 leytið....þegar það sem braust inn um eyru mín var "Run to the hills" með Iron Maiden og varð mér svo mikið um að ég hellti of mikilli mjólk í ilmandi heitt kaffið. Sko, í fyrsta lagi var þetta ekki Iron Maiden, heldur var búið að íslenska það og hefði þá ekki samkvæmt öllu textinn átt að vera "hlaupum að hólunum"??? En, nei,nei,nei,nei...heldur var textinn "Gleðileg jól" þar sem "run to the hills" var hér í den.......Hvað er að??? Hvaða fæðingarfávita dettur í hug að taka svona óhugnarlegt og óbarnvænt lag og reyna að slá því upp í eitthvað jólahringl ??? Á ekki börnum að hlakka til jólanna?? Eða er Eddie orðinn einn af jólasveinunum?? Ég slökkti á útvarpinu pent og ákvað að setja valin jólalög Gerðar G Bjarklindar á.
Ég gat ekki betur séð og heyrt en að dræm þáttaka yrði á þorrablótinu góða í febrúar......þannig að ég sit bara ein heima og blóta í staðinn......ég get sossum alveg blótað karlmönnum yfir fertugt þ.e.a.s ef ég verð ekki búin að stíga á stokk og lofa því að hætta að halda að þeir séu fávitar.
Ég held að Móðir jörð verði ekki eins sátt ef engin mætir, hún er búin að skrá niður efnisfirlit fyrir hvern og einn frá komu til brottfarar....
Á 6 litla kettlinga sem eru orðnir 5 vikna og farnir að álpast út um allt, ég þarf að kenna þeim að drekka eitthvað annað en mömmu sína, sem étur á við hross, og svo pissa þeir út um allt gestaherbergi og ég ræð ekki við neitt......ég hef ekki tíma í þetta með mini-kokksa og allt !! Þeir eru rosakrútt og vantar heimili.....HJÁLP!!! .......Grumpa, þeir eru samt ekki til átu handa löngu vitleysunni....

Sunday, December 10, 2006

Lúsíupartý en engin Lúsía...

Búin að vera með baunir í hausnum í dag, engan verk eða ógleði né neitt sem tengist þynnku almennt, en hausinn er svona cirka 5 mínútum of seinn í gang hjá mér í dag......Það var nefnilega slett úr klaufunum í gærkvöldi í hinu árlega Lúsíudjammi !! Ég ætlaði á trúnó og búin að safna alveg fullt af efni en svo gleymdist það víst. Ég ætlaði líka að komast á sjéns við einhvern stæltan olíuborinn og forríkan karlmann á fertugsaldri með dökkt hár og c.a 85-90 kíló en svo gerðist ekkert......eina sem gerðist var að fyrrverandi hringdi kl. 03.25 þegar ég var lögst til hvílu til að fara á trúnó og segja mér að hann væri búinn að stunda fjallgöngur í 1 ár. En þetta var gott djamm þó Grumpu hafi verið sárt saknað, hún stoppaði ekki nógu lengi með oss sem er kannski ástæðan fyrir því að ég komst ekki á trúnó!! Zorglúbb fór 2 sinnum heim, af einhverjum ástæðum hefur hann ruglast á miðri leið heim og haldið að hann væri á leiðinni Á djammið og snúið við. Forski og Frúin fóru að þrasa en sættust með "mér hefur alltaf þótt svo vænt um þig" músí músí mín og við Monopoly vorum innikróaðar í sætunum og neyddumst til að fylgjast með. Ég brunaði svo heim með baunahaus og perubragð í munni í morgunn og knúsaði mini-kokksann minn.....Hver verður Lúsían næst?? Einhver sem mætir takk.

Friday, December 01, 2006

Jólamánuður genginn í garð...

Jæja, þá er jólamánuðurinn kominn og ég er búin að setja upp 2 jólaseríur, 4 aðventuljós og greinar með ljósum á í stofugluggann.....þetta fór ekki allt í stofugluggann, heldur bara greinarnar, hitt fór út um allt hús. Svo er ég farin að skoða kjöt í búðunum og bera saman verð, plana hvar best er að setja jólatréð án þess að mini-kokksi og 6 litlir kettlingar rústi því á 5 sekúndum !! Konfektgerðar-tækið sem ég gaf múttu í jólagjöf í fyrra verður nú dregið fram í fyrsta sinn og dustað af því rykið, jólalög eru orðin vinsælt undirspil á heimilinu og ég er búin að taka myndir af mini-kokksa með jólasveinahúfu til að setja í jólakort.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.....sagði einhver sem var vel skipulagður.
Ég er ennþá á móti karlmönnum yfir 40 og mun það kannski verða nýársheitið mitt á gamlaárskvöldi......verður að vísu að vera þá eftir nokkur kampavínsglös, að hætta að halda að þeir séu fífl eftir fertugt.
Ég er farin að telja dagana í Lúsíudjammið og í ár verður það áfengur perucíder sem ég kem með til að geta farið á trúnó og gert mig að fífli. Þar sem ég er orðin góð húsmóðir í dag og eyði tíma mínum með mini-kokksa eins mikið og ég geri þá er eins gott að haga sér eins og fáviti þegar maður leyfir sér að fara í rokkælu-múnderinguna svona for once. Ég mæli ekki með að Frúin fari í einhverju óðagoti að búa til bar ef ekki eru peningarnir, nema hún ætli að bjóða uppá rúðupiss, skurepulver í kóki með klaka eða mýkingarefni í sprite....við ætlum að lifa af kvöldið Frú mín góð. Stóra spurningin er bara hvar ég á að sofa, vona að hún eigi dýnu handa mér og sæng og ekki of harðan kodda...